Það fyrsta og eitt það mikilvægasta sem ég geri þegar ég útbúa videodagbækurnar er að finna rétta lagið. Lagið undir gefur einhvern veginn tóninn og fór stundum lengri tími í að ákveða hvaða lag yrði fyrir valinu heldur en að setja saman í dagbók.
Einsog ég hef sagt áður á blogginu þá lét Biggi vinur minn mig hafa alveg fáránlega góða tónlist rétt fyrir brottför. Þessi tónlist spilaði ansi stóra rullu í ferðinni en ég hef aldrei hlustað jafnmikið á tónlist og síðustu 8 mánuð. Í tónlistarblöndunni var allt frá afrískri tónlist, rapp, rokk, reggí, electro..
Ég ætlaði að bæta við lögum á iPodinn minn hjá einum Breta sem ég hitti. Þá var ég flottur á því og eyddi út öllum lögunum útaf iPodnum og var hálffatlaður fyrir vikið. Merki þess ber að geta í dagbók #8 þar sem þetta var (af einhverjum fáránlegum ástæðum) eiginlega eina lagið sem ég var með á tölvunni) en mér finnst það samt virka á einhvern skemmtilega asnalegan hátt. Biggi sendi mér svo lögin via dropbox fljótlega seinna.
Hjalti Axel (hinn eplaóði) lét mig svo fá skemmtilegan playlista síðar í ferðinni og hann setur svip sinn á síðustu video-in og eitthvað af því sem er framundan. Atli Bolla lét mig líka fá 2 lög.
Ég fékk fyrirspurn um daginn þar sem ég var spurður útí lögin og sagðist ég þá ætla birta listann hérna. Hann er ekki alveg tæmandi þar sem ég veit ekkert um 2 laganna. En hér kemur listinn…
#1 The Roots - How I Got Over
#2 Jack Peñate - Pull My Heart Away
#3 Engin tónlist
#4 Engin tónlist
#5 Cam’ron - My Job
#6 ?
#7 Cam’ron - My Job
#8 Þemalagið úr Only Fools and Horses sjónvarpsþáttunum
#9 David Gray (The Killers eiga lagið) - Smile Like You Mean It
#10 Groove Armada - I Won’t Kneel
#11 Don’t Let Me Down - Bítlarnir? (I Am Sam soundtrack)
#12 The Boy Least Likely To - Be Gentle To Me
#13 Tom Petty - Free Falln’
#14 Cold War Kids - Hang Me Up To Dry
#15 Cut Copy - Autobahn Music Box
#16 Little Jackie - 28 Butts
#17 Au Revoir Simone - Sad Song (Pacific Remix)
#18 ?
#19 Ed Harcourt - Apple of My Eye
#20 Charles & Eddie - Would I Lie To You?
#21 The Virgins - Rich Girls (Le Castlevania’s Spring Break No Parents Remix)
#22 Mazzy Star - Sweet Jane
#23 Caesars - Jerk It Out
#24 Paul & Fritz Kalkbrenner - Sky And Sand
#25 Ekkert lag
#26 Colin Munroe - I’m Fine (Feat. Young Buck)
#27 The Maccabees - Love You Better
#28 Ray LaMontagne - You Are The Best Thing
#29 Thor & The Whiskey Collection - Bjarminn Yfir Borginni
#30 Big Boi - Shine Blockas
#31 Arrested Development - People Everyday (Metamorphosis Mix)
#32 My Tiger, My Timing - The Sound
#33 Ugly Duckling - Mr. Tough Guy
#34 New Order - Bizarre Love Triangle
#35 David Bowie - Sound And Vision
#36 Yeasayer - O.N.E.
#37 Broken Bells - The High Road
#38 Free Energy - Bang Pop og Alana Levandoski - Moody Manitoba Morning
Og í upphafstefinu er byrjunin á laginu Happy Eyez með CocoRosie.