Að gefnu tilefni þá tek ég fram að ég er kominn heim til Íslands eftir rúma 7 mánuði á ferðalagi. Þrátt fyrir að vera staddur í Gimli á videoblogginu þá er langt í frá að það hafi verið síðasti áfangastaðurinn. Ég mun á næstu dögum klára ferðalagið hér á blogginu enda á nægu að taka. Gæti trúað því að þetta væru 5-6 videodagbækur ásamt einhverju aukaefni.
Stay tuned.

Ég endaði ferðalagið á Þjóðhátíð í Vestmannaeyjum en alltaf þegar ég kem til eyjunnar fögru grænu þá splæsi ég í eitt stykki myndatöku fyrir framan Baldurskró.