Videodagbók #38
Ég hika ekki við að segja að Gimli hafi verið einn besti áfangastaðurinn á ferðalaginu. Aðra eins gestrisni hef ég aldrei upplifað og það var gaman að sjá hversu stoltir íbúarnir eru af uppruna sínum. Þetta er ekki í síðasta skipti sem ég heimsæki Gimli, svo mikið er víst.
Stelpan sem tók lagið við varðeldinn heitir Alana Levandoski og er þekkt tónlistarkona í Kanada. Heimasíðan hennar er: alanalevandoski.com.