23. desember 2009 hélt ég af stað í ferðlag sem mig hafði dreymt um í langan tíma. Þá fór ég frá Íslandi með one way ticket í heimreisu næstu 9 mánuðina. Áfangastaðir munu fara eftir stemmningu, tilviljunum og budgeti.

Hér mun ég halda út stafrænni dagbók.

"Just Do It" - Dan Wieden

#36

Einsog ég segi í upphafskynningunni, þá hefur Gimli verið ofarlega í huga mér í mörg ár. 
Spurningin: ” Hvað í ósköpunum er í gangi þarna í Gimli?” hefur ómað í hausnum á mér. 
Það var því eina í stöðunni að kíkja á staðinn og taka púlsinn á mekka Íslendinga í Norður Ameríku.

Þetta er fyrri parturinn og svo kemur meira aukaefni, tengt Gimli, á bloggið innan skamms.