23. desember 2009 hélt ég af stað í ferðlag sem mig hafði dreymt um í langan tíma. Þá fór ég frá Íslandi með one way ticket í heimreisu næstu 9 mánuðina. Áfangastaðir munu fara eftir stemmningu, tilviljunum og budgeti.

Hér mun ég halda út stafrænni dagbók.

"Just Do It" - Dan Wieden

Videodagbók #35

Hluti af því að ferðast á budgeti er að maður verður stundum að taka ansi langar rútu-/lestarferðir. Ég hef kynnst nokkrum slíkum. Áður fyrr fannst mér ferlegt að hugsa til þess að fara í 4 tíma rútuferð til Akureyrar. Mælikvarðinn hefur breyst töluvert eftir þetta ferðalag en ég fór í mína lengstu ferð frá Montreal til Winnipeg, 34 klukkustundir tók það í Greyhound rútu.

Það sem gerði ferðina töluvert skemmtilegri var að lítill strákur frá Afghanistan sem settist hliðin á mér. Talaði enga ensku en var alveg að kaupa nýjustu tæknina frá Apple. Talaði við afa hans og þau voru að flytjast búferlum, með allt hafurtaskið með sér og eini sem talaði ensku var afinn, en hún var mjög takmörkuð.

Einnig nokkur brot frá rútu- og lestarferðum sem ég fór í Asíu.