23. desember 2009 hélt ég af stað í ferðlag sem mig hafði dreymt um í langan tíma. Þá fór ég frá Íslandi með one way ticket í heimreisu næstu 9 mánuðina. Áfangastaðir munu fara eftir stemmningu, tilviljunum og budgeti.

Hér mun ég halda út stafrænni dagbók.

"Just Do It" - Dan Wieden

90’s Nostalgía

Ég og Atli eyddum dágóðum tíma eina kvöldstundina í Brauðsmiðjunni (íbúðinni þeirra) í að skoða gömul golden moment úr NBA (t.d. þegar John Paxon setti þristinn og tryggði Chicago Bulls titilinn 1993 á móti Phoenix).

Í kjölfarið fórum við að googla og wikipedia ýmsar stjörnur frá níunda áratugnum. Mæli hiklaust með þessu. Gamlar stjörnur á borð við Jeff Goldblum, Emilio Estevez, Andie MacDowell, Chris O’Donnell og Anna Chlumsky svo örfáir séu nefndir.

Okkur niðurstaða var sú að Danny Glover hefði spilað best úr spilunum svona all-around en notaðir voru gríðarlega flóknir útreikningar við þá útkomu.