23. desember 2009 hélt ég af stað í ferðlag sem mig hafði dreymt um í langan tíma. Þá fór ég frá Íslandi með one way ticket í heimreisu næstu 9 mánuðina. Áfangastaðir munu fara eftir stemmningu, tilviljunum og budgeti.

Hér mun ég halda út stafrænni dagbók.

"Just Do It" - Dan Wieden

Poutine

Ég man að þegar ég hitti tvo Kanadabúa á Indlandi og þeir sögðu mér frá ákveðnum þjóðarétt þeirra, svona svipað og pylsa á Bæjarins Bestu. Einsog þau útskýrðu þetta fyrir mér þá var þetta franskar kartöflur, brún sósa og ostur sem var mixað saman. 

Gat ekki ímyndað mér að þetta væri gott. En það var áður en ég kom til Montreal og mér var kynnt fyrir besta poutine-inu í borginni. Ég fæ ennþá vatn í munnvikin við tilhugsunina eina.

Hér má lesar nánar um þennan þjóðarrétt þeirra.

Fyrsta kvöldið og Atli fór kynnti mig fyrir Poutine. Ljósmyndarinn ekki alveg með headspace-ið á hreinu. Sem er kannski skiljanlegt enda vorum við nokkuð hauslausir þetta kvöldið.

André, kóngur Poutine’s í Montreal.

Ég veit hvað margir hugsa þegar þeir sjá þetta. En þá segi ég bara einsog Kanadabúarnir á Indlandi…”you just have to try and you’ll see”.