Forsaga okkar Atla Bolla er nokkuð skemmtileg.
Það var eftir annað árið mitt í framhaldsskóla þegar ég fékk símtal frá Atla - hafði aldrei talað við hann en við könnuðumst við hvor annan þar sem við höfðum báðir verið viðriðnir félagslífið í skólunum okkar, ég í Verzló og Atli í MH. Og kannski meira útaf því að þeim tíma blogguðum við báðir.
Þannig ég kannaðist vel við hann en hann vatt sér beint að efninu í símtalinu; “Hey, blessaður maður. Atli Bolla hérna í MH - það er komin upp hugmynd um sameina nokkra góða gaura úr mismunandi skólum og stofna félagsskap, ertu maður?”.
Ég var meira en klár. Conceptið var í raun að taka 2 vini úr Verzló, MH og MR/FB og sjá hvernig sá kokteill myndi virka. Hann kynnti fyrir mér að hópurinn samstæði af honum og Orra Jökulssyni (MH), mér og Þorvaldi (Verzló), Oddi Ástráðs og Braga (MR/FB).
Atli ætlaði að hýsa fyrsta hittinginn en eitthvað kom skyndilega upp þannig að ég bauðst til hýsa samkomuna. Þorvaldur var að leika þannig að ég vissi að hann myndi verða seinn.
En ég gerði allt reddí í bakgarðinum, undirbjó grillið en svo leið hálftími frá því að allir ætluðu að vera mættr - en enginn kominn. Svo var það komið í einhverjar 45 mínútur og ég hugsaði með mér: “fuck, djöfull var ég tekinn af þessum helvítis MH/MR/FB-ingum”.
Það er náttúrulega alltaf klassískur menntaskólarígur á milli þessara skóla og hélt á þessu mómenti að ég væri aðalleikmaðurinn í hrekk hjá þeim. En svo komu þeir allir stuttu síðar og kvöldið var alveg brilliant. Gáfum hópnum nafnið Synir Skallagríms, rituðum lög og náðum einhvern veginn allir ótrúlega vel saman þrátt fyrir að vera mjög ólíkir.
Héldum svo ca. 8 “fundi” á næstu árum og ég hef trú á því að lengi muni lifa í þessum góðu glæðum. Síðasti hittingur var um jólin 2008 þannig að það er spurning að splæsa í hitting í lok sumars - held það sé kominn tími á það.