23. desember 2009 hélt ég af stað í ferðlag sem mig hafði dreymt um í langan tíma. Þá fór ég frá Íslandi með one way ticket í heimreisu næstu 9 mánuðina. Áfangastaðir munu fara eftir stemmningu, tilviljunum og budgeti.

Hér mun ég halda út stafrænni dagbók.

"Just Do It" - Dan Wieden

Brauðsmiðjan nefnist íbúðin sem Atli Bolla, Gregory og Page búa í Montreal en það er einhver magnaðsta íbúð sem ég hef komið í. Er svon stúdíóíbúð og eru haldnir tónleikar þarna reglulega. Var svona kommúnufílingur.
Hafði það hrikalega gott í Brauðsmiðjunni og Montreal.