23. desember 2009 hélt ég af stað í ferðlag sem mig hafði dreymt um í langan tíma. Þá fór ég frá Íslandi með one way ticket í heimreisu næstu 9 mánuðina. Áfangastaðir munu fara eftir stemmningu, tilviljunum og budgeti.

Hér mun ég halda út stafrænni dagbók.

"Just Do It" - Dan Wieden

Einsog ég segi í síðustu videodagbók þá borgar það sig oft að vera ekki búinn að plana hlutina of mikið fram í tímann. Því fékk ég svo sannarlega að kynnast á Anthens eyjunni hjá Steve og Lisu. 

Planið var að þau myndu droppa mér út í Toronto þar sem ég ætlaði svo að finna myndi svo fara með rútu til Montreal. Í kokteilinn komu hjón, herra og frú Green, sem búa í Toronto og þau buðu mér að “sófann” sinn. Endaði með því að ég var hjá þeim í 3 daga í vægast sagt góðu yfirlæti. Mér finnst magnað til þess að hugsa svona eftir á að þarna var fólk sem ég hafði aldrei hitt áður, þau tóku mig inná heimili sitt, fórum með mig og hittu son þeirra eitt kvöldið, dóttur og vinafólk annað kvöldið og ég fór og heimsótti Jackie á vinnustofunna hennar - en hún var að vinna að málverkasýningu í vinnustofu sinni.

Gott fólk alveg fram í fingurgóma.