23. desember 2009 hélt ég af stað í ferðlag sem mig hafði dreymt um í langan tíma. Þá fór ég frá Íslandi með one way ticket í heimreisu næstu 9 mánuðina. Áfangastaðir munu fara eftir stemmningu, tilviljunum og budgeti.

Hér mun ég halda út stafrænni dagbók.

"Just Do It" - Dan Wieden

Ein stór fjölskylda

Ástæðan fyrir því að ég fór til Boston var sú að bróðir hans pabba, Steve Jenks, býr þar. Þeir eru ekki blóðskyldir, pabbi fór sem skiptinemi til Bandaríkjanna árið 1973-1974 og þar eignaðist hann nýja foreldra og ný systkini til lífstíðar. Jenks fjölskyldan.

Ég man að þegar ég var lítill þá og við fórum í heimsókn til ömmu og afa í Sævó þá fór ég alltaf í kjallarann þeirra og opnaði þar kassa sem á stóð “KG ‘74”. Þar voru hlutir sem pabbi hafði sankað að sér á meðan skiptinemaárinu stóð og setti ég alltaf ameríska fótboltahjálminn á mig. Ég hef væntanlega verið ca. 6 ára þegar ég ákvað að ég ætlaði sjálfur sem skiptinemi til Bandaríkjanna og lét verða af því 10 árum síðar. 

Það er ótrúlegt sambandið sem pabbi á við Jenks fjölskylduna. Hann kallar fósturforeldra sína, Bill og Mary, ennþá mömmu og pabba. Jeff og Steve Jenks eru bræður hans og Debbie er litla systir hans. Ég heimsótti Jeff til Colorado þegar ég var skiptinemi, hef einu sinni áður farið til Steve í Boston þegar ég var á leiðinni til New York fyrir nokkrum árum, Árni litli bróðir minn var eitt sumar hjá Jeff og Lísu í Colorado, Colin sonur þeirra var eitt sumarið hjá okkur í Reykjavík og svo mætti áfram telja. 

En þegar ég fór með Steve og Lisu Jenks á eyjuna þeirra í Kanada yfir helgi þá upplifði ég í fyrsta skipti þessi mögnuðu tengsl. Sá pabba oft þegar ég var að tala við Steve og áttaði mig bara á því hversu mögnuð tengsl hafa myndast. 

Hér eru nokkrar myndir sem tala sínu máli.

The Brady Bunch

Scott Zigler, aðal kvennagullið í Ottawa Hills og besti vinur pabba. Kom síðar í ljós að hann var samkynhneigður og lést úr HIV kringum 1985.

Á leiðinni á the Prom ‘74.

Það var greinilega splæst í dýrari týpuna af kagga.

Þetta gæti verið “still frame” úr Dazed & Confused myndinni.

Ottowa Hills High School Team.

Pabbi var kickerinn í liðinu.

Bill (Dad) tendrar í grillinu.

Jeff var “the best man” í brúðkaupinu hjá mömmu og pabba árið 1978.

Jeff kom með einkaþotu fyrirtækisins sem pabbi þeirra (Bill) vann fyrir. Forstjóri fyrirtækisins kom hingað á henni í laxveiði ásamt geimfaranum Neil Armstrong sem var góður vinur Bill Jenks. (Skemmtileg fréttin hægra megin við myndina sem segir “Heimsreisa fyrir áskrifenda DB - Nú fara að vera síðustu forvöð”.)

Afi Gísli á Reykjavíkurflugvelli og gamli Mustanginn hans og Þórður frændi í bakgrunni.

Pabbi í flugvélinni 

Mamma hringir long distance.

Þessi mynd er í miklu úppáhaldi hjá mér.

Úllala…hvaða pía er þetta eiginlega?

Jeff á “Black Stone” sem er hefð fyrir að stökkva fram af.

Mamma með sixpack og pabbi einn skítkaldan.

Pabbi, Steve Jenks og Dad.

Pabbi og mamma með Gísla í  brúðkaupinu hjá Jeff og Lisu. Er að meta stílinn á pabba. Og reyndar mömmu líka.

Jeff á Brávallagötunni árið 1974. Hann bjó í kjallaranum hjá þeim. Frekar svalur.

Pabbi og Jeff á Íslandi.

Þessi mynd vann einhverja ljósmyndsamkeppni á sínum tíma.

Jeff í útileigu með vinum pabba og Hummernum sem pabbi og mamma höfðu verið í 9 mánuði að gera upp.

Þetta var jómfrúarferðin á bílnum.

Hummerinn í fljótshlíðinni.

Úbbbs…

Þeir misstu hann í ánna, hann var dreginn upp og seldur eftir þessa jómfrúarferð á bílnum. 

Strákarnir á leið í rafting fyrir nokkrum árum.

Jeff og pabbi fyrir nokkrum árum.

  1. baldurkristjans posted this