23. desember 2009 hélt ég af stað í ferðlag sem mig hafði dreymt um í langan tíma. Þá fór ég frá Íslandi með one way ticket í heimreisu næstu 9 mánuðina. Áfangastaðir munu fara eftir stemmningu, tilviljunum og budgeti.

Hér mun ég halda út stafrænni dagbók.

"Just Do It" - Dan Wieden

New York -> Boston

Rútuferðin frá New York til Boston var sú besta í ferðinni. Ekki nema rúmir 4 tímar, 16 skítnir dollarar og svo var wifi í rútunni. Eftir fyrri ferðamáta í Asíu var þetta einsog Business Class.

Ég talaði m.a. við pabba á Skype.

Sessunauturinn svaf…þó ekki á öxlinni á mér.

Hér er ég á Indlandi fyrir hálfu ári þar sem plássið var minna og sessunauturinn innilegri.

  1. baldurkristjans posted this