23. desember 2009 hélt ég af stað í ferðlag sem mig hafði dreymt um í langan tíma. Þá fór ég frá Íslandi með one way ticket í heimreisu næstu 9 mánuðina. Áfangastaðir munu fara eftir stemmningu, tilviljunum og budgeti.

Hér mun ég halda út stafrænni dagbók.

"Just Do It" - Dan Wieden

Týpan sem skrifar á facebook síðu félaga sinna: “Nei, blessaður, hvað er að frétta? Langt síðan maður hefur séð þig - hvernig er Eplið að tríta þig? Verðum svo að detta í einn kaldan hehe” - er hrikalega góð týpa. Finnst það slaga uppí týpuna sem commentar eitthvað og setur svo alltaf skvís fyrir aftan. Jafnvel splæsir í einn fönkí broskall eða svona symbols einsog hægt er að gera.

Ég og Hjalti Axel höfum alltaf talað um New York sem Eplið. Rétt einsog við köllum Kaupmannahöfn alltaf Köngsens. Btw. þá finnst mér mjög leiðinlegt hversu Nætur/Dag/Fangavaktarfrasarnir hafa liðið undir lok. Ég ætla að fá mér “Já fínt já sæll” hringinguna þegar ég kem heim og fæ mér síma. 

Það voru því miklir fagnaðarfundir þegar ég hitti Hjalta Axel í Eplinu og hann kom að sjálfsögðu færandi hendi, með eldrautt epli sem við jöpluðum síðar um kvöldið. 

En ég má líka til með að útnefnd Hjallann og unnustu hans, Hulluna, sem óvæntasta félagsskap dvalarinnar. Það var algjör bónus að þau skildu vera í Eplinu og það er greinilegt að það borgar sig að vera í útlöndum með Hjallanum því að þegar ég fór á Hróaskeldu árið 2007 þá var Hjallinn einnig á svæðinu og þetta er greinilega combo sem getur ekki klikkað. 

p.s. SKÍTKALDUR