23. desember 2009 hélt ég af stað í ferðlag sem mig hafði dreymt um í langan tíma. Þá fór ég frá Íslandi með one way ticket í heimreisu næstu 9 mánuðina. Áfangastaðir munu fara eftir stemmningu, tilviljunum og budgeti.

Hér mun ég halda út stafrænni dagbók.

"Just Do It" - Dan Wieden

Ég er gríðarlegur Hammborgarabúllu aðdáandi. Finnst það lang bestu borgararnir í bænum en hef þó reyndar ekki enn farið á Hamborgarafabrikkuna. 

Þegar ég var með stúdíó-ið við Norðurstíginn var ég alltaf með rútínu sem fólst í því að á laugardögum fór ég og fékk mér einn tvöfaldan, í stóru brauði, mínus tómatar og matreitt á disk og með hnífapörum og kók. Svo var það destertinn sem var súkkulaðikakan þeirra með ís og þar sem þeir voru ekki með mjólk þá fékk ég aða taka með mér litla léttmjólkufernu og drakk það úr kældu shakeglasi. Þetta er golden combo og svo endaði maður það með því að fá sér bensínstöðvarkaffið þeirra sem ég er gríðarlega hrifinn af.

Ég hafði heyrt að Búllan væri kópering af stað í New York. Biggi var með þetta allt á hreinu og fór með mig þangað. Mjög skemmtilegt að maður labbar inná mjög fancy hótel og svo er einsog maður sé að fara á klósettið og þá er maður kominn á The Burger Joint. Þetta var alveg eins. Enda ekkert af því - engin ástæða til þess að þurfa að fara alla leið til NY til þess að fá sér bestu borgara heims. 

Ef einhver er á leiðinni til NY þá mæli ég hiklaust með staðnum. Getið skoðað betur hér.

  1. baldurkristjans posted this