Hér er ég, hér er ég…góðan daginn..daginn…daginn..
Fór með Bigga í fótbolta í Chelsea Piers en þar spilar hann bolta einu sinni í viku. Var ekki búinn að spila fótbolta í hálft ár og hrikalega var þetta gaman. Náði að setja 2 mörk. Hinsvegar kom gamla góða skapið upp þegar einn úr hinu liðinu bókstaflega greip um punginn á mér og tók 90 gráðu snúning. Í kjölfarið varð smá battl sem endaði með því að ég fékk rauða spjaldið og helvítis pungsswingerinn skoraði svo úrslitamarkið nokkrum sekúndum fyrir leikslok.
En í lokin var tekist í hendur og allir fóru heim sáttir. It’s just football (samt pínu pirraður ennþá).

Ég að reyna að kreista fram bros í leikslok. Biggi sýndi gamla og góða takta enda skotfastasti maður Íslandsmótsins 1993.