Videodagbók #29
Biggi og Þorvaldur deildu forræði yfir mér á meðan ég var í stórborginni. Ég var bara eins og lítill krakki og þegar það var “pabbahelgi” hjá Þorvaldi sagði hann mér að koma og hitta sig heima hjá einum í hljómsveit sem hann hefur verið að spila með, The Whiskey Collection. Ég fékk þau til að láta mig hafa demóútgáfu af einu laginu og setti saman lítið video af þessu “jam” sessioni.