# 28
Þorvaldur hefur verið vinur minn frá því á 6 ára afmælisdeginum hans. Þá var ég eftir þegar allir gestirnir fóru og síðan þá eigum við ansi mörg skemmtileg móment sem við höfum upplifað saman. Hann er eins traustur og góður vinur og mögulegt getur hugsast.
Gleymi því ekki þegar hann hringdi í mig frá New York, þegar hann var í áheyrnarprufunum og hafði komist áfram í gegnum úrtökurnar. Svo var ég líka með honum daginn sem hann fékk tilkynnt að hann hefði fengið inngöngu í Juilliard og því var fagnað með koníaki og vindli í hádeginu. Hef svo farið og heimsótt hann í skólann en þetta var í fyrsta skipti sem ég sá (sá og ekki sá) hann sýna á fjölum skólans.
Var alveg gjörsamlega búinn á því eftir 2 daga ferðag frá Asíu til Ameríku, útskriftartryllingur hjá Bigga kvöldið áður og…já svo á ég ekkert sérstaklega erfitt með að sofna í svona aðstæðum.