23. desember 2009 hélt ég af stað í ferðlag sem mig hafði dreymt um í langan tíma. Þá fór ég frá Íslandi með one way ticket í heimreisu næstu 9 mánuðina. Áfangastaðir munu fara eftir stemmningu, tilviljunum og budgeti.

Hér mun ég halda út stafrænni dagbók.

"Just Do It" - Dan Wieden

Pizzan (með greini)

Daginn eftir útskriftina hans Bigga fór hann með mig á pizzastað sem var með alveg fáránlega góðri pizzu á matseðlinum. Mjög einföld en bara fáránlega góð.

Ef einhver er á leiðinni, eða er stödd/staddur í stórboginni þá mæli ég með Truffata (eða það sem er svalara er að setjast niður og biðja bara beint um #7 á matseðlinum) 

Staðurinn heitir Luzzo’s.

Hér erum við í fyrra skiptið sem við fórum.

Að sjálfsögðu skelltum við okkur aftur áður en ég fór. Ég fæ vatn í munninn við það eitt að horfa á þessa pizzu.