23. desember 2009 hélt ég af stað í ferðlag sem mig hafði dreymt um í langan tíma. Þá fór ég frá Íslandi með one way ticket í heimreisu næstu 9 mánuðina. Áfangastaðir munu fara eftir stemmningu, tilviljunum og budgeti.

Hér mun ég halda út stafrænni dagbók.

"Just Do It" - Dan Wieden

Videodagbók #26

 

Tveir af mínum æskuvinum, Biggi og Þorvaldur, eru búsettir í uppáhaldsborginni minni, New York.

Ég var orðinn ansi þreyttur eftir allt ferðalagið í Asíu og hafði ímyndað mér að fara til Ástralíu eftir það.

Fór svo út að skokka eitt kvöldið og fékk þá skyndihugdettu; ef ég myndi finna gott flug til New York frá suðaustur Asíu þá myndi ég breyta planinu og fara til N-Ameríku.
Snéri við á punktinum, sprettaði uppá hóstel og nokkrum mínútum síðar var ég kominn með flugmiða til New York.

Skyndiákvörðun af bestu gerð.