Á leiðinni til baka frá Angkor Wat þá sá ég man sem var að spá fyrir fólki. Ég stoppaði hjólið og byrjaði að spjalla við þessa tvo stráka sem voru að bíða eftir að það væri komið að þeim.

Þessi hægra megin átti afmæli (26 ára) og þeir hofðu gert sér ferð úr bænum til þess að fá að fara til spámannsins. Vildu aðallega vita með hvernig ástarmálin hjá þeim færu.

Ég skellti mér líka til spámannsins og þeir voru túlkarnir mínir þar sem spámaðurinn talaði enga ensku. Gaf honum upp fæðingardag, hann mældi lófann á mér o.s.frv. Svo setti hann upp einhverja formúlu og útfrá vasareikninum gat hann sagt mér allt um framtíð mína. Ég verð mjög hissa ef þetta mun ekki allt fara einsog hann sagði.