Ég gerði heiðarlega tilraun til þess að heimsækja hof og reyna njóta þess þegar ég var í Kambódíu. Frægasta hofið þeirra, Angkor Wat, er rétt fyrir utan Siem Reap og fyrst ég var staddur þar ákvað ég að taka þetta alla leið. Vaknaði klukkan 4:30 að nóttu til og byrjaði hjóla í 45 mínútur til þess að sjá dýrðina við sólarupprás.
Ég horfði á sólina koma upp, leit í kringum mig þar sem allt var pakkað af túristum og hugsaði með mér; hvern er ég að blekkja?

Rétt einsog ég þurfti að sætta mig að fíla ekki Star Wars myndirnar þá er verð ég bara að sætta mig við að ég mér finnst ekkert voðalega gaman að skoða þessi hof.

Þetta fannst mér hinsvegar áhugavert sjónahorn. Þ.e.a.s að sjá alla túristana með myndavélarnar á lofti…sem var reynar nákvæmlega það sem ég var sjálfur að gera.