23. desember 2009 hélt ég af stað í ferðlag sem mig hafði dreymt um í langan tíma. Þá fór ég frá Íslandi með one way ticket í heimreisu næstu 9 mánuðina. Áfangastaðir munu fara eftir stemmningu, tilviljunum og budgeti.

Hér mun ég halda út stafrænni dagbók.

"Just Do It" - Dan Wieden

Videodagbók #24

Það er ekki langt síðan að hryllileg fjöldamorð áttu sér stað í Kambódíu. Frá árunum 1975-1979 er talið að allt að 2.2 milljónir hafi látist af völdum Rauðu Khmeranna. Það var ca. 30% af þjóðinni.
Engum var hlíft, hvorki börnum, konum né gamalmennum.

Ég fór á stað sem heitir ‘Killing Fields’ þar sem stór hluta morðanna fór fram. Þar hitti ég fyrir tilviljun konu, sem hafði rétt sloppið frá Rauðu Kmerununum og var að heimsækja þennan stað í fyrsta skipti. Margir ættingjar hennar og vinir voru myrtir á þessum stað.

Nánar hér: en.wikipedia.org/wiki/The_Killing_Fields