Sem Íslendingur þekkir maður hversu mikið maður metur sólskinsdaga. Maður tímir varla að keyra í Nauthólsvíkina, sundlaugina eða hvert sem maður er að fara því að inniveran í bílnum er í raun sóun á sólinni.
Ég er líka vanur því að finnast það ágætis mál að keyra til Akureyrar og ef við erum farin að tala um Egilsstaði þá hefur maður varla lagt í það - nema kannski fljúga.
Á ferðalagi mínu hef ég staðið mig af því að pirrast yfir því að það sé ekki í fjórði í sól. Hinir 3 dagarnir hafa bara verið alltof nice.
En á móti kemur þá er 6 tíma rútuferð bara einsog skreppa í Hafnarfjörð, 12 tímar pís of keik ef að iPodinn er hlaðinn en reyndar hef ég farið í tvær 24 tíma rútuferðir sem ég viðurkenni alveg að voru ekkert mannbætandi.
Hér eru myndir frá annarri þeirra, það sem meira var þá deildi ég afar þröngu plássi með 3 öðrum karlmönnum.
Séð að framan
Séð aftan frá