23. desember 2009 hélt ég af stað í ferðlag sem mig hafði dreymt um í langan tíma. Þá fór ég frá Íslandi með one way ticket í heimreisu næstu 9 mánuðina. Áfangastaðir munu fara eftir stemmningu, tilviljunum og budgeti.

Hér mun ég halda út stafrænni dagbók.

"Just Do It" - Dan Wieden

Nokkrum mánuðum áður en brottför út í heim var áætluð þurfti ég að breyta lífsmynstrinu á ýmsan hátt. T.d. leigði ég íbúðina mína út og flutti heim til mömmu og pabba, seldi bílinn minn og fékk að keyra að bíl vinar míns og með hjálp Gumma “frænda” setti ég á laggirnar Guerrilla Studio við höfnina í Rvk. 

Nafnið kom frá skæruliðahermönnum sem gátu sett upp herstöðvar sínar á skömmum tíma og fært sig um set þegar hentaði. 

Þarna á ég góðar minningar; work in progress ferlið, margar skemmtilegar myndatökur, nokkur góð partý og tala nú ekki um körfuboltaleikina.