23. desember 2009 hélt ég af stað í ferðlag sem mig hafði dreymt um í langan tíma. Þá fór ég frá Íslandi með one way ticket í heimreisu næstu 9 mánuðina. Áfangastaðir munu fara eftir stemmningu, tilviljunum og budgeti.

Hér mun ég halda út stafrænni dagbók.

"Just Do It" - Dan Wieden

Skæruliðarnir…

Það er ekkert annað stríð, sem verður bara að segjast, að Bandaríkkjamenn skíttöpuðu einsog Víetnamstríðið. Þegar ég var skiptinemi í Washingtonfylki þá var ég með frábæran sögukennara, Mr. Pointdexter, sem að hikaði ekkert við það að játa þjóð sína gjörsigraða fyrir okkur óhörnuðu unglingana.

Hasta la vista, baby…maður þurfti ekkert byssuleyfi til þess að fá að skjóta úr AK-47 í Ho Chi Minh City (Saigon) . Eina sem þurfti voru nokkrir dollarar.

Ég rétt svo fittaði í holuna góðu sem Vietcongararnir lifðu í á köflum

Held að það sé alveg fullkomnlega öruggt að segja að Ho Chi Minh hafi (og sé enn) aðalmaðurinn í Víetnam. Þessi skeggfídus hans er t.a.m. gríðarlega vinsæll á landsvísu.

Þennan hitti ég í byrjun Víetnamdvalarinnar, hann ólst upp við Vietnamstríðið í “bakgarðinum”