23. desember 2009 hélt ég af stað í ferðlag sem mig hafði dreymt um í langan tíma. Þá fór ég frá Íslandi með one way ticket í heimreisu næstu 9 mánuðina. Áfangastaðir munu fara eftir stemmningu, tilviljunum og budgeti.

Hér mun ég halda út stafrænni dagbók.

"Just Do It" - Dan Wieden

(Dýra)Líf á hóstelinu í Hoi An

Ég fann ágætis hóstel í Hoi An, var allavega ódýrt sem skipti mestu máli. Það var samt smá shaky að vissu leyti, t.d. náði veggurinn á baðherberginu inná herbergi ekki alveg uppí loft. Og greinilegt að hinum megin var annað baðherbergi því að eitt skiptið þegar ég var að tannbursta mig varð mér ljóst að greyið stelpan í hinu herberginu var eitthvað slöpp í maganum.

Eitt kvöldið, sat ég í lobby-inu og var að hlaða inn myndum á tölvuna. Þá komu tveir skemmtilegir gestir; herra froskur og tvær spólgraðar eðlur.

Eðlurnar að eðla sig á myndavélaólinni minni…eðlilega

Froskinum líkaði greinilega Eplið, sat þarna sallarólegur og pósaði fyrir mig. Náði honum þó ekki í fókus…og sem kalla mig ljósmyndara

  1. baldurkristjans posted this