Videodagbók #42
Ég var búinn að ákveða að ljúka ferðalaginu með því að koma með Norrænu og ferðast aðeins um Ísland áður en ég myndi segja þetta gott. Átti flugmiða hjá Iceland Express sem ég nýtti mér frá New York til Gautaborgar með millilendingu í Keflavík. Átti bara að vera klukkutími en þökk sé 7 tíma seinkun var ég staddur þar í eina 8 klukkutíma. Það var mjög sérstakt og kómískt að vera staddur þar eftir 7 mánaða fjarveru frá Íslandi. Drakk í mig öll dagblöðin og latte á Kaffitári áður en ég hélt til Davíðs Þórs vinar míns í Svíþjóð. Hann býr í Vaxjö og það var algjört quality tími með honum þar og óhætt að segja að vináttan hafi náð nýjum hæðum. Tók svo lestina til Köben þar sem ég hitti Simma (sem ég hef þekkt frá því við vorum 5 ára) og hann skutlaði mér í Norrænu. Ferðin yfir atlantshafið tók 2 daga. Ég hefði auðveldlega getað sómað mér í dag eða tvo í viðbót á Norrænu. Við komuna á Seyðisfjörð tók Rás 2 á móti mér með mjög svo viðeigandi lagi.