23. desember 2009 hélt ég af stað í ferðlag sem mig hafði dreymt um í langan tíma. Þá fór ég frá Íslandi með one way ticket í heimreisu næstu 9 mánuðina. Áfangastaðir munu fara eftir stemmningu, tilviljunum og budgeti.

Hér mun ég halda út stafrænni dagbók.

"Just Do It" - Dan Wieden

Videodagbók #41

Árið 2000 - 2001 var ég skiptinemi í Washington fylki í Bandaríkjunum. Ég hafði í raun ákveðið að fara tíu árum áður eða allt frá því a ég reif fram kassa merktum pabba sem var geymdur í geymslunni hjá ömmu og afa í Sævó og innihélt kassinn ýmsa muni frá skiptinema ári hans. Setti á mig ameríska fótboltahjálminn og var harðákveðinn að fara.

Það eru pricelss forréttindi að fara út sem skiptinemi þegar maður er 17 ára gamall og uppgötva eitt og annað um umheiminn og sjálfan sig. Í lok skiptinemaársins fékk ég fyrst fluguna um að fara í stærra ferðalag - sem ég framkvæmdi svo 10 árum síðar.

Ég fór og heimsótti bæinn minn, Longview og hitti þar fyrir fósturfjölskylduna mína, Coach Anderson sem var gamli fótboltaþjálfarinn minn og Coach Bakamus sem var körfuboltaþjálfarinn í Mark Morris High School svo einhverjir séu nefndir. Endaði svo í Seattle hjá Jess Wamre, gömlum vini úr high school.