Videodagbók #39
Veikindi sem ég glímdi við í nokkur ár, fyrir nokkrum árum, hafa spilað stóra rullu í mínu lífi. Ég var með krónískan hausverk í nokkur ár og tvisvar sinnum var ég nánast lagður af stað í slíka reisu sem og ég gerði nú - en þurfti að hætta við útaf verkjunum.
Árið 2007 fór á eina virtustu læknastofunun heims, Mayo Clinic í Minnesota. Sama ár fannst lausn á verknum og hefur lífið vægast sagt breyst mikið frá þessu tímabili. Ég á mörgum að þakka og ég held að það sé best að sýna það þakklæti með því að njóta lífsins eins mikið og mögulegt er og ekki vera láta minniháttar mál trufla sig.
Ég ferðaðist í tvo sólarhringa til þess að hitta læknana og heimsækja bæinn sem ég dvaldi í 3 vikur árið 2007. Þrátt fyrir að vera aðeins í sólarhring þá var það frábært móment, gefa læknunum high five, fara á alla þá staði sem voru partur af minni rútínu fyrir 3 árum og tala við annað fólk sem er að glíma við króníska verki.