23. desember 2009 hélt ég af stað í ferðlag sem mig hafði dreymt um í langan tíma. Þá fór ég frá Íslandi með one way ticket í heimreisu næstu 9 mánuðina. Áfangastaðir munu fara eftir stemmningu, tilviljunum og budgeti.

Hér mun ég halda út stafrænni dagbók.

"Just Do It" - Dan Wieden

Gimli Gimli

Ég á eftir að gera tímanum í Gimli mun betri skil síðar meir. Ég fór þangað í hálferðu djóki en þetta endaði með að vera einn skemmtilegasti tími ferðarinnar. Hér koma nokkrar mýflugurmyndir..

Hér er ég fyrir framan minnisvarðann sem er staðsettur þar sem Íslendingar “ráku” á land við Lake Winnipeg árið 1875. Mögnuð tölfræði að ca. 30% af íslensku þjóðinni hafi flust til N-Ameríku á árunum 1870- 1910 .

Robbie Rousse þekkja flestir sem hafa komið á vegum Íslendingahátíðarinnar, Núna (nunanow.com). Hann hefur verið tengiliður við hljómsveitirnar og annað listafólk. Aðspurður sagist hann hafa náð vel saman við Megas. Hann lóðsaði mig um bæinn fyrstu dagana og á miklar þakkir skildar.

Í lok seinna myndbandsins sést þegar það var smá “bonfire” við Lake Winnipeg. Það var reyndar fyrsta kvöldið sem það var haldið, ég hafði þá komið til Gimli eftir 35 tíma rútuferðina góðu. En ég man þegar ég sat í tjaldstólnum, helslakur, með einn íslenskan og skítkaldan og hlustaði á útileigulög Manitoba búa - að lífið gæti nú verið verra en þetta.

Það var áberandi í hversu miklum metum Vigdís Finnbogadóttir og Kristján Eldjárn voru í Gimli. Davíð Oddsson hafði líka heillað margan.

Reykjavík Bakery var í eigu þriggja Íslendinga sem voru nýfluttir til Gimli. Þau höfðu ákveðið að breyta til og fyrir nokkra tilviljun endað í Gimli. En voru hæstánægð með það. Held samt að ég hafi verið ánægðari að hafa komist í einn spikfeitan glassúrsneið.

Ég og Helga, Fjallkonan 2010, urðum miklir mátar. Hún bauð mér m.a. í mat með vinkonum sínum og erum vinir á Facebook. Hún er að koma til landsins síðar á árinu og þá verð ég með kaffikönnuna rjúkandi heita.

Hefði ekki viljað mæta þessum í dimmu húsasundi. En í Gimli buðu þeir mér í grillmat og voru miklir ljúflingar.

Nick var mikill meistari en hann er kærasti Fionu sem er dóttir bæjarstýrunnar í Gimli. Gisti hjá honum í 3 daga og kunni gríðarlega vel við hann sem og Fionu.

—-

En einsog ég segi þá verður Gimli gefin betri skil síðar meir á öðrum vettvangi.