August 2010
15 posts
Welcome Home (sungið af Magga í Vogaskóla)
Loksins er ég kominn til Íslands á videoblogginu enda ekki seinna vænna. Það eru enn 3 video sem eiga eftir að koma ásamt smá aukaefni um þá staði sem ég heimsótti eftir ég kvaddi Kanada. Það efni mun koma inná síðuna á næstu dögum.   Það fyrsta sem ég gerði þegar ég kom til landsins var að pulsa mig upp á Egilsstöðum, lesa blöðin og það sem ég hafði saknað einna mest…að fara í sund.
Aug 27th
17 notes
Aug 27th
9 notes
Aug 27th
Aug 27th
Aug 27th
Gimli Grapvine Issue
Ég hef átt í skemmtilegu samstarfi með strákunum í Grapevine síðustu ár. Hef tekið að mér nokkrar forsíðumyndatökur með þeim og oftar en ekki hefur verið mikið stress og fjör alveg fram á allra síðasta deadline. Fékk símtal frá þeim í síðustu viku og þeir sögðu mér að næsta blað yrði undirlagt Gimli. Spurðu mig hvort að ég ætti myndir sem þeir gætu notað. Það var meira en sjálfsagt. Mæli með því...
Aug 27th
Aug 27th
Aug 27th
Gimli Gimli
Ég á eftir að gera tímanum í Gimli mun betri skil síðar meir. Ég fór þangað í hálferðu djóki en þetta endaði með að vera einn skemmtilegasti tími ferðarinnar. Hér koma nokkrar mýflugurmyndir.. Hér er ég fyrir framan minnisvarðann sem er staðsettur þar sem Íslendingar “ráku” á land við Lake Winnipeg árið 1875. Mögnuð tölfræði að ca. 30% af íslensku þjóðinni hafi flust til N-Ameríku á...
Aug 27th
Anonymous asked: Þekki þig ekki neitt en þetta ferðalag þitt vekur áhuga manns, vel sagt og skemmtilega sagt frá hlutunum.
Má ég forvitnast hvaða forrit þú notar til að klippa videodagbækurnar?

kv
Örvar
Aug 10th
1 note
Soundtrackið úr dagbókunum
Það fyrsta og eitt það mikilvægasta sem ég geri þegar ég útbúa videodagbækurnar er að finna rétta lagið. Lagið undir gefur einhvern veginn tóninn og fór stundum lengri tími í að ákveða hvaða lag yrði fyrir valinu heldur en að setja saman í dagbók. Einsog ég hef sagt áður á blogginu þá lét Biggi vinur minn mig hafa alveg fáránlega góða tónlist rétt fyrir brottför. Þessi tónlist spilaði ansi stóra...
Aug 10th
4 notes
Kominn heim en á nóg eftir...
Að gefnu tilefni þá tek ég fram að ég er kominn heim til Íslands eftir rúma 7 mánuði á ferðalagi. Þrátt fyrir að vera staddur í Gimli á videoblogginu þá er langt í frá að það hafi verið síðasti áfangastaðurinn. Ég mun á næstu dögum klára ferðalagið hér á blogginu enda á nægu að taka. Gæti trúað því að þetta væru 5-6 videodagbækur ásamt einhverju aukaefni. Stay tuned. Ég endaði ferðalagið...
Aug 9th
Anonymous asked: hvad heitir lagid i Videodagbók #32
Aug 9th
Aug 8th
Aug 8th
1 note
July 2010
20 posts
WatchWatch
#36 Einsog ég segi í upphafskynningunni, þá hefur Gimli verið ofarlega í huga mér í mörg ár.  Spurningin: ” Hvað í ósköpunum er í gangi þarna í Gimli?” hefur ómað í hausnum á mér.  Það var því eina í stöðunni að kíkja á staðinn og taka púlsinn á mekka Íslendinga í Norður Ameríku. Þetta er fyrri parturinn og svo kemur meira aukaefni, tengt Gimli, á bloggið innan skamms.
Jul 21st
WatchWatch
Videodagbók #35 Hluti af því að ferðast á budgeti er að maður verður stundum að taka ansi langar rútu-/lestarferðir. Ég hef kynnst nokkrum slíkum. Áður fyrr fannst mér ferlegt að hugsa til þess að fara í 4 tíma rútuferð til Akureyrar. Mælikvarðinn hefur breyst töluvert eftir þetta ferðalag en ég fór í mína lengstu ferð frá Montreal til Winnipeg, 34 klukkustundir tók það í Greyhound rútu. Það...
Jul 11th
iPodinn
Einn hlutur sem hefur spilað stóra rullu í ferðinni er það iPodinn minn. Hefur komið mér í gegnum langar ferðir, verið minn besti vinur á köflum (ásamt myndavélinni) og sofna oft útfrá góðri tónlist á kvöldin. Ég hef verið mjög heppinn hingað til með að týna ekki neinu (7,9,13..knock on a wood og allt það) einsog kreditkorti, vegabréfi eða öðru slíkum nauðsynjum. En með nokkurra daga millibili...
Jul 11th
90's Nostalgía
Ég og Atli eyddum dágóðum tíma eina kvöldstundina í Brauðsmiðjunni (íbúðinni þeirra) í að skoða gömul golden moment úr NBA (t.d. þegar John Paxon setti þristinn og tryggði Chicago Bulls titilinn 1993 á móti Phoenix). Í kjölfarið fórum við að googla og wikipedia ýmsar stjörnur frá níunda áratugnum. Mæli hiklaust með þessu. Gamlar stjörnur á borð við Jeff Goldblum, Emilio Estevez, Andie...
Jul 11th
Poutine
Ég man að þegar ég hitti tvo Kanadabúa á Indlandi og þeir sögðu mér frá ákveðnum þjóðarétt þeirra, svona svipað og pylsa á Bæjarins Bestu. Einsog þau útskýrðu þetta fyrir mér þá var þetta franskar kartöflur, brún sósa og ostur sem var mixað saman.  Gat ekki ímyndað mér að þetta væri gott. En það var áður en ég kom til Montreal og mér var kynnt fyrir besta poutine-inu í borginni. Ég fæ ennþá...
Jul 11th
Jul 11th
WatchWatch
Brauðsmiðjan nefnist íbúðin sem Atli Bolla, Gregory og Page búa í Montreal en það er einhver magnaðsta íbúð sem ég hef komið í. Er svon stúdíóíbúð og eru haldnir tónleikar þarna reglulega. Var svona kommúnufílingur. Hafði það hrikalega gott í Brauðsmiðjunni og Montreal.
Jul 11th
Appelsínugulur að innan og gylltur rennilás
Hér eru tölvupóstsamskeyti milli mín og Sóla frá því apríl/maí. Ég sé enn betur að ég fór á bakvið orð mín en það var bara no turning back eftir að ég var búinn að máta hann.  Hér er pósturinn frá Sóla frá 30. apríl 2010. Hér er svarið frá mér 1. maí 2010. Hér er svo Matthías, sonur Sóla og guðsonur minn, íklæddur fighterjakka sem ég gaf honum og að sjálfsögðu með attitute - sem gerist...
Jul 11th
WatchWatch
Á fyrstu árum mínum í grunnskóla dreymdi mig um að eignast svokallaðan fighterjakka. Þeir voru allsráðandi hjá eldri töffurunum í hverfinu og voru þeir oftar en ekki búnir að sauma bætur á ermina, oftast með e-i þungarokkshljómsveit einsog Iron Maiden. Jakkarnir fengust í vinnufatabúðinni en besta úrvalið af bótum var á efri hæðinni í kringlunni. Mamma var hinsvegar ekki fús til að fjárfesta í...
Jul 11th
Jul 9th
WatchWatch
Videodagbók #32 Sjaldan hefur það sannast fyrir mér að the way to go á ferðalaginu er að plana hlutina ekki of mikið fram í tímann heldur að leyfa þeim dálítið að ráðast.  Jeff og Lisa ætluðu að droppa mér í Toronto áður en þau færu til Boston og ég ætlaði mér beint þaðan til Montreal. En síðasta kvöldið á Anthens Island buðu þau fólki á nærliggjandi svæðum í kokteil og þar komu Mr. and Mrs....
Jul 7th
Ein stór fjölskylda
Ástæðan fyrir því að ég fór til Boston var sú að bróðir hans pabba, Steve Jenks, býr þar. Þeir eru ekki blóðskyldir, pabbi fór sem skiptinemi til Bandaríkjanna árið 1973-1974 og þar eignaðist hann nýja foreldra og ný systkini til lífstíðar. Jenks fjölskyldan. Ég man að þegar ég var lítill þá og við fórum í heimsókn til ömmu og afa í Sævó þá fór ég alltaf í kjallarann þeirra og opnaði þar kassa...
Jul 6th
1 note
WatchWatch
Videodagbók #31 Það sem fullkomnaði “hleðsluna” á sjálfum mér var helgin sem ég varði með Jenks fjölskyldunni í sumarbústaðnum þeirra á eyju í Kanada. Nánar um þau nánu tengls sem hafa myndast milli fjölskyldu minnar og Jenks fjölskyldunnar kemur á bloggið mitt seinna í dag.
Jul 5th
1 note
New York -> Boston
Rútuferðin frá New York til Boston var sú besta í ferðinni. Ekki nema rúmir 4 tímar, 16 skítnir dollarar og svo var wifi í rútunni. Eftir fyrri ferðamáta í Asíu var þetta einsog Business Class. Ég talaði m.a. við pabba á Skype. Sessunauturinn svaf…þó ekki á öxlinni á mér. Hér er ég á Indlandi fyrir hálfu ári þar sem plássið var minna og sessunauturinn innilegri.
Jul 5th
1 note
Jul 5th
“Þetta er bara það sem mömmur gera” - mamma”
– Þegar ég að sagði henni í upphafi ferðarinnar að vera ekki svona áhyggjufull. Ég gat ekkert sagt við þessu svari hennar.
Jul 4th
WatchWatch
Videodagbók #30 1423 ljósmyndir af tveggja vikna dvöl minni í New York er hér þjappað saman í 3 góðar mínútur. Enda var dvölin góð, alltaf kemur NY manni á óvart - sama hversu oft maður hefur farið þangað þá er bara eitthvað vibe sem ómögulegt er að skýra. Þakka Arnóri (flickr.com/photos/arnorskuli) fyrir að lána mér myndir frá ströndinni og öllu því skemmtilega fólki sem ég hitti á meðan NY...
Jul 3rd
Jul 3rd
1 note
Rauða spjaldið, rauða spjaldið - hvar ert þú?
Hér er ég, hér er ég…góðan daginn..daginn…daginn.. Fór með Bigga í fótbolta í Chelsea Piers en þar spilar hann bolta einu sinni í viku. Var ekki búinn að spila fótbolta í hálft ár og hrikalega var þetta gaman. Náði að setja 2 mörk. Hinsvegar kom gamla góða skapið upp þegar einn úr hinu liðinu bókstaflega greip um punginn á mér og tók 90 gráðu snúning. Í kjölfarið varð smá battl...
Jul 3rd
WatchWatch
Videodagbók #29 Biggi og Þorvaldur deildu forræði yfir mér á meðan ég var í stórborginni. Ég var bara eins og lítill krakki og þegar það var “pabbahelgi” hjá Þorvaldi sagði hann mér að koma og hitta sig heima hjá einum í hljómsveit sem hann hefur verið að spila með, The Whiskey Collection. Ég fékk þau til að láta mig hafa demóútgáfu af einu laginu og setti saman lítið video af þessu...
Jul 1st
June 2010
9 posts
Thor & The Whiskey Collection
Ég fór með Þorvaldi í “stúdío-ið”  hjá The Whiskey Collection, sem er hljómsveit skipuð nemendum úr skólanum hans, og fylgdist með þeim taka upp lög sem Þorvaldur hefur samið. Það var frekar nice, sérstaklega þar sem þessir krakkar voru allir mjög svo góðir á’ðí og íbúðin/stúdío-ið skemmtilegt. Lag frá Thor & The Whiskey Collection is next up… Hluti af Viskí...
Jun 10th
WatchWatch
# 28 Þorvaldur hefur verið vinur minn frá því á 6 ára afmælisdeginum hans. Þá var ég eftir þegar allir gestirnir fóru og síðan þá eigum við ansi mörg skemmtileg móment sem við höfum upplifað saman. Hann er eins traustur og góður vinur og mögulegt getur hugsast.  Gleymi því ekki þegar hann hringdi í mig frá New York, þegar hann var í áheyrnarprufunum og hafði komist áfram í gegnum úrtökurnar. Svo...
Jun 8th
Pizzan (með greini)
Daginn eftir útskriftina hans Bigga fór hann með mig á pizzastað sem var með alveg fáránlega góðri pizzu á matseðlinum. Mjög einföld en bara fáránlega góð. Ef einhver er á leiðinni, eða er stödd/staddur í stórboginni þá mæli ég með Truffata (eða það sem er svalara er að setjast niður og biðja bara beint um #7 á matseðlinum)  Staðurinn heitir Luzzo’s. Hér erum við í fyrra skiptið sem við...
Jun 6th
WatchWatch
Videodagbók #27 Það spilaði nokkuð stóra rullu í þeirri ákvörðun minni að skella mér til USA, að Biggi skyldi vera fara útskrifast úr meistarnámi sínu úr NYU.  Daginn eftir að ég mætti á svæðið var stóri dagurinn og ekki skemmdi fyrir að Silja vinkona mín var að útskrifast sama dag úr Parsons.  Gott fólk og góður dagur.
Jun 6th
WatchWatch
Videodagbók #26   Tveir af mínum æskuvinum, Biggi og Þorvaldur, eru búsettir í uppáhaldsborginni minni, New York. Ég var orðinn ansi þreyttur eftir allt ferðalagið í Asíu og hafði ímyndað mér að fara til Ástralíu eftir það. Fór svo út að skokka eitt kvöldið og fékk þá skyndihugdettu; ef ég myndi finna gott flug til New York frá suðaustur Asíu þá myndi ég breyta planinu og fara til N-Ameríku....
Jun 4th
Viltu vera flottust/flottastur?
Svokallaðir tuk tuk (rickshaw) eru mjög algengir á götunum í mörgum hlutum Asía og eru notaðir einsog leigubilar heima.  Oftast eru þeir eins, en sumir “pimpa” aðeins upp á tuk tuk-inn sinn. Einsog þessi, sem kallaði sig Mr. Batman.  Luxury Rolls Royce Batmobile Fullkominn stíll Hann vildi að ég myndi auglýsa bílinn hans fyrir vini mína. Þannig að ef einhver er á leiðinni til...
Jun 4th
WatchWatch
Videodagbók #25 EMO í Asíu.
Jun 4th
Framtíðin
Á leiðinni til baka frá Angkor Wat þá sá ég man sem var að spá fyrir fólki. Ég stoppaði hjólið og byrjaði að spjalla við þessa tvo stráka sem voru að bíða eftir að það væri komið að þeim. Þessi hægra megin átti afmæli (26 ára) og þeir hofðu gert sér ferð úr bænum til þess að fá að fara til spámannsins. Vildu aðallega vita með hvernig ástarmálin hjá þeim færu. Ég skellti mér líka til...
Jun 4th
Angkor What?
Ég gerði heiðarlega tilraun til þess að heimsækja hof og reyna njóta þess þegar ég var í Kambódíu. Frægasta hofið þeirra, Angkor Wat, er rétt fyrir utan Siem Reap og fyrst ég var staddur þar ákvað ég að taka þetta alla leið. Vaknaði klukkan 4:30 að nóttu til og byrjaði hjóla í 45 mínútur til þess að sjá dýrðina við sólarupprás. Ég horfði á sólina koma upp, leit í kringum mig þar sem allt var...
Jun 4th
May 2010
16 posts
WatchWatch
Videodagbók #24 Það er ekki langt síðan að hryllileg fjöldamorð áttu sér stað í Kambódíu. Frá árunum 1975-1979 er talið að allt að 2.2 milljónir hafi látist af völdum Rauðu Khmeranna. Það var ca. 30% af þjóðinni. Engum var hlíft, hvorki börnum, konum né gamalmennum. Ég fór á stað sem heitir ‘Killing Fields’ þar sem stór hluta morðanna fór fram. Þar hitti ég fyrir tilviljun konu,...
May 31st
WatchWatch
Videodagbók #23 Eftir vel heppnaðan mánuð í Víetnam tók ég bát til Kambódíu og naut þar útsýnins Mekong fljótsins.
May 30th
Viðmið
Sem Íslendingur þekkir maður hversu mikið maður metur sólskinsdaga. Maður tímir varla að keyra í Nauthólsvíkina, sundlaugina eða hvert sem maður er að fara því að inniveran í bílnum er í raun sóun á sólinni. Ég er líka vanur því að finnast það ágætis mál að keyra til Akureyrar og ef við erum farin að tala um Egilsstaði þá hefur maður varla lagt í það - nema kannski fljúga. Á ferðalagi mínu hef...
May 30th
1 note
WatchWatch
Nokkrum mánuðum áður en brottför út í heim var áætluð þurfti ég að breyta lífsmynstrinu á ýmsan hátt. T.d. leigði ég íbúðina mína út og flutti heim til mömmu og pabba, seldi bílinn minn og fékk að keyra að bíl vinar míns og með hjálp Gumma “frænda” setti ég á laggirnar Guerrilla Studio við höfnina í Rvk.  Nafnið kom frá skæruliðahermönnum sem gátu sett upp herstöðvar sínar á skömmum...
May 30th
Skæruliðarnir...
Það er ekkert annað stríð, sem verður bara að segjast, að Bandaríkkjamenn skíttöpuðu einsog Víetnamstríðið. Þegar ég var skiptinemi í Washingtonfylki þá var ég með frábæran sögukennara, Mr. Pointdexter, sem að hikaði ekkert við það að játa þjóð sína gjörsigraða fyrir okkur óhörnuðu unglingana. Hasta la vista, baby…maður þurfti ekkert byssuleyfi til þess að fá að skjóta úr AK-47 í Ho Chi...
May 30th
Á að flyja Jackie Chan suður á bóginn?
Jackie (einsog ég kýs að kalla hann enda finnst mér einsog sé farinn að þekkja hann eftir að hafa verið í Kína þar sem maður gat ekki snúið sér í 360° án þess að sjá hann brosa til manns) er greinilega að hasla sér völl í suðaustur Asíu.  Nú var hann mættur, að sjálfsögðu með thumb up, í tölvubúð í Víetnam
May 30th