23. desember 2009 hélt ég af stað í ferðlag sem mig hafði dreymt um í langan tíma. Þá fór ég frá Íslandi með one way ticket í heimreisu næstu 9 mánuðina. Áfangastaðir munu fara eftir stemmningu, tilviljunum og budgeti.

Hér mun ég halda út stafrænni dagbók.

"Just Do It" - Dan Wieden

Welcome Home (sungið af Magga í Vogaskóla)

Loksins er ég kominn til Íslands á videoblogginu enda ekki seinna vænna. Það eru enn 3 video sem eiga eftir að koma ásamt smá aukaefni um þá staði sem ég heimsótti eftir ég kvaddi Kanada. Það efni mun koma inná síðuna á næstu dögum.

 

Það fyrsta sem ég gerði þegar ég kom til landsins var að pulsa mig upp á Egilsstöðum, lesa blöðin og það sem ég hafði saknað einna mest…að fara í sund.

Videodagbók #42

Ég var búinn að ákveða að ljúka ferðalaginu með því að koma með Norrænu og ferðast aðeins um Ísland áður en ég myndi segja þetta gott. Átti flugmiða hjá Iceland Express sem ég nýtti mér frá New York til Gautaborgar með millilendingu í Keflavík. Átti bara að vera klukkutími en þökk sé 7 tíma seinkun var ég staddur þar í eina 8 klukkutíma. Það var mjög sérstakt og kómískt að vera staddur þar eftir 7 mánaða fjarveru frá Íslandi. Drakk í mig öll dagblöðin og latte á Kaffitári áður en ég hélt til Davíðs Þórs vinar míns í Svíþjóð. Hann býr í Vaxjö og það var algjört quality tími með honum þar og óhætt að segja að vináttan hafi náð nýjum hæðum. Tók svo lestina til Köben þar sem ég hitti Simma (sem ég hef þekkt frá því við vorum 5 ára) og hann skutlaði mér í Norrænu. Ferðin yfir atlantshafið tók 2 daga. Ég hefði auðveldlega getað sómað mér í dag eða tvo í viðbót á Norrænu. Við komuna á Seyðisfjörð tók Rás 2 á móti mér með mjög svo viðeigandi lagi.

Videodagbók #41

Árið 2000 - 2001 var ég skiptinemi í Washington fylki í Bandaríkjunum. Ég hafði í raun ákveðið að fara tíu árum áður eða allt frá því a ég reif fram kassa merktum pabba sem var geymdur í geymslunni hjá ömmu og afa í Sævó og innihélt kassinn ýmsa muni frá skiptinema ári hans. Setti á mig ameríska fótboltahjálminn og var harðákveðinn að fara.

Það eru pricelss forréttindi að fara út sem skiptinemi þegar maður er 17 ára gamall og uppgötva eitt og annað um umheiminn og sjálfan sig. Í lok skiptinemaársins fékk ég fyrst fluguna um að fara í stærra ferðalag - sem ég framkvæmdi svo 10 árum síðar.

Ég fór og heimsótti bæinn minn, Longview og hitti þar fyrir fósturfjölskylduna mína, Coach Anderson sem var gamli fótboltaþjálfarinn minn og Coach Bakamus sem var körfuboltaþjálfarinn í Mark Morris High School svo einhverjir séu nefndir. Endaði svo í Seattle hjá Jess Wamre, gömlum vini úr high school.

Videodagbók #40

Ég fór til tveggja staða í Kaliforníu; LA þar sem Dröfn og Johnny hýstu mig og svo San Diego þar sem besti vinur minn frá skiptinemaári mínu og spúsa hans búa. 

Í L.A. hitti ég félaga sem ég hafði hitt á Indlandi en hann heitir Billy Harvey (www.billyharvey.com) og það voru miklir fagnaðarfundir. Svo var þjóðhátíðardagur þeirra Kana þegar ég var staddur í San Diego og það er óhætt að segja að þeir hati ekkert að skella bbq steik á grillið, opna nokkra Bud Light og horfa á flugelda. Og ekki ég heldur.

Videodagbók #39

Veikindi sem ég glímdi við í nokkur ár, fyrir nokkrum árum, hafa spilað stóra rullu í mínu lífi. Ég var með krónískan hausverk í nokkur ár og tvisvar sinnum var ég nánast lagður af stað í slíka reisu sem og ég gerði nú - en þurfti að hætta við útaf verkjunum.

Árið 2007 fór á eina virtustu læknastofunun heims, Mayo Clinic í Minnesota. Sama ár fannst lausn á verknum og hefur lífið vægast sagt breyst mikið frá þessu tímabili. Ég á mörgum að þakka og ég held að það sé best að sýna það þakklæti með því að njóta lífsins eins mikið og mögulegt er og ekki vera láta minniháttar mál trufla sig. 

Ég ferðaðist í tvo sólarhringa til þess að hitta læknana og heimsækja bæinn sem ég dvaldi í 3 vikur árið 2007. Þrátt fyrir að vera aðeins í sólarhring þá var það frábært móment, gefa læknunum high five, fara á alla þá staði sem voru partur af minni rútínu fyrir 3 árum og tala við annað fólk sem er að glíma við króníska verki.

Gimli Grapvine Issue

Ég hef átt í skemmtilegu samstarfi með strákunum í Grapevine síðustu ár. Hef tekið að mér nokkrar forsíðumyndatökur með þeim og oftar en ekki hefur verið mikið stress og fjör alveg fram á allra síðasta deadline.

Fékk símtal frá þeim í síðustu viku og þeir sögðu mér að næsta blað yrði undirlagt Gimli. Spurðu mig hvort að ég ætti myndir sem þeir gætu notað. Það var meira en sjálfsagt.

Mæli með því að þið kippið Grapevine með ykkur næst þegar þið sjáið það eða downloadað því

Forsíðan á issue #13 - Gimli Edition. 

Fyrir miðju blaðsins eru fleiri myndir frá dvöl minni í Gimli.

Due to interest from the Western-Icelanders here is my video diary #2 from Gimli with english subtitle.

Due to interest from the Western-Icelanders here is my video diary #1 from Gimli with english subtitle.

Gimli Gimli

Ég á eftir að gera tímanum í Gimli mun betri skil síðar meir. Ég fór þangað í hálferðu djóki en þetta endaði með að vera einn skemmtilegasti tími ferðarinnar. Hér koma nokkrar mýflugurmyndir..

Hér er ég fyrir framan minnisvarðann sem er staðsettur þar sem Íslendingar “ráku” á land við Lake Winnipeg árið 1875. Mögnuð tölfræði að ca. 30% af íslensku þjóðinni hafi flust til N-Ameríku á árunum 1870- 1910 .

Robbie Rousse þekkja flestir sem hafa komið á vegum Íslendingahátíðarinnar, Núna (nunanow.com). Hann hefur verið tengiliður við hljómsveitirnar og annað listafólk. Aðspurður sagist hann hafa náð vel saman við Megas. Hann lóðsaði mig um bæinn fyrstu dagana og á miklar þakkir skildar.

Í lok seinna myndbandsins sést þegar það var smá “bonfire” við Lake Winnipeg. Það var reyndar fyrsta kvöldið sem það var haldið, ég hafði þá komið til Gimli eftir 35 tíma rútuferðina góðu. En ég man þegar ég sat í tjaldstólnum, helslakur, með einn íslenskan og skítkaldan og hlustaði á útileigulög Manitoba búa - að lífið gæti nú verið verra en þetta.

Það var áberandi í hversu miklum metum Vigdís Finnbogadóttir og Kristján Eldjárn voru í Gimli. Davíð Oddsson hafði líka heillað margan.

Reykjavík Bakery var í eigu þriggja Íslendinga sem voru nýfluttir til Gimli. Þau höfðu ákveðið að breyta til og fyrir nokkra tilviljun endað í Gimli. En voru hæstánægð með það. Held samt að ég hafi verið ánægðari að hafa komist í einn spikfeitan glassúrsneið.

Ég og Helga, Fjallkonan 2010, urðum miklir mátar. Hún bauð mér m.a. í mat með vinkonum sínum og erum vinir á Facebook. Hún er að koma til landsins síðar á árinu og þá verð ég með kaffikönnuna rjúkandi heita.

Hefði ekki viljað mæta þessum í dimmu húsasundi. En í Gimli buðu þeir mér í grillmat og voru miklir ljúflingar.

Nick var mikill meistari en hann er kærasti Fionu sem er dóttir bæjarstýrunnar í Gimli. Gisti hjá honum í 3 daga og kunni gríðarlega vel við hann sem og Fionu.

—-

En einsog ég segi þá verður Gimli gefin betri skil síðar meir á öðrum vettvangi.

Anonymous asked: Þekki þig ekki neitt en þetta ferðalag þitt vekur áhuga manns, vel sagt og skemmtilega sagt frá hlutunum.
Má ég forvitnast hvaða forrit þú notar til að klippa videodagbækurnar?

kv
Örvar

Takk fyrir það Örvar. Ég get alveg fullyrt það að ég hefði ekki lagt eins mikið í bloggið/video-in nema útaf svona skemmtilegum viðbrögðum sem ég hef fengið frá ókunnugum, kunningjum og vinum. 

Ég notaði eitt mest basic forritið í bransanum í öll video-in; iMovie. Meira að segja gömlu útgáfuna, 6.0.3. Mjög svo idiot proof og þó ég fara örugglega að fikta fljótlega með Final Cut þá er þetta forrit brilliant. Einsog með aðrar Apple vörur þá er ekkert verið að flækja hlutina óþarflega.

B.kv. Baldur Kristjáns

Soundtrackið úr dagbókunum

Það fyrsta og eitt það mikilvægasta sem ég geri þegar ég útbúa videodagbækurnar er að finna rétta lagið. Lagið undir gefur einhvern veginn tóninn og fór stundum lengri tími í að ákveða hvaða lag yrði fyrir valinu heldur en að setja saman í dagbók.

Einsog ég hef sagt áður á blogginu þá lét Biggi vinur minn mig hafa alveg fáránlega góða tónlist rétt fyrir brottför. Þessi tónlist spilaði ansi stóra rullu í ferðinni en ég hef aldrei hlustað jafnmikið á tónlist og síðustu 8 mánuð. Í tónlistarblöndunni var allt frá afrískri tónlist, rapp, rokk, reggí, electro..

Ég ætlaði að bæta við lögum á iPodinn minn hjá einum Breta sem ég hitti. Þá var ég flottur á því og eyddi út öllum lögunum útaf iPodnum og var hálffatlaður fyrir vikið. Merki þess ber að geta í dagbók #8 þar sem þetta var (af einhverjum fáránlegum ástæðum) eiginlega eina lagið sem ég var með á tölvunni) en mér finnst það samt virka á einhvern skemmtilega asnalegan hátt. Biggi sendi mér svo lögin via dropbox fljótlega seinna.

Hjalti Axel (hinn eplaóði) lét mig svo fá skemmtilegan playlista síðar í ferðinni og hann setur svip sinn á síðustu video-in og eitthvað af því sem er framundan. Atli Bolla lét mig líka fá 2 lög.

Ég fékk fyrirspurn um daginn þar sem ég var spurður útí lögin og sagðist ég þá ætla birta listann hérna. Hann er ekki alveg tæmandi þar sem ég veit ekkert um 2 laganna. En hér kemur listinn…

#1 The Roots - How I Got Over

#2 Jack Peñate - Pull My Heart Away

#3 Engin tónlist

#4 Engin tónlist

#5 Cam’ron - My Job

#6 ? 

#7 Cam’ron - My Job

#8 Þemalagið úr Only Fools and Horses sjónvarpsþáttunum

#9 David Gray (The Killers eiga lagið) - Smile Like You Mean It

#10 Groove Armada - I Won’t Kneel

#11 Don’t Let Me Down - Bítlarnir? (I Am Sam soundtrack)

#12 The Boy Least Likely To - Be Gentle To Me

#13 Tom Petty - Free Falln’

#14 Cold War Kids - Hang Me Up To Dry

#15 Cut Copy - Autobahn Music Box

#16 Little Jackie - 28 Butts

#17 Au Revoir Simone - Sad Song (Pacific Remix)

#18 ?

#19 Ed Harcourt - Apple of My Eye

#20 Charles & Eddie - Would I Lie To You?

#21 The Virgins - Rich Girls (Le Castlevania’s Spring Break No Parents Remix)

#22 Mazzy Star - Sweet Jane

#23 Caesars - Jerk It Out

#24 Paul & Fritz Kalkbrenner - Sky And Sand

#25 Ekkert lag

#26 Colin Munroe - I’m Fine (Feat. Young Buck)

#27 The Maccabees - Love You Better

#28 Ray LaMontagne - You Are The Best Thing

#29 Thor & The Whiskey Collection - Bjarminn Yfir Borginni

#30 Big Boi - Shine Blockas

#31 Arrested Development - People Everyday (Metamorphosis Mix)

#32 My Tiger, My Timing - The Sound

#33 Ugly Duckling - Mr. Tough Guy

#34 New Order - Bizarre Love Triangle

#35 David Bowie - Sound And Vision

#36 Yeasayer - O.N.E.

#37 Broken Bells - The High Road

#38 Free Energy - Bang Pop og Alana Levandoski - Moody Manitoba Morning

 Og í upphafstefinu er byrjunin á laginu Happy Eyez með CocoRosie. 

Kominn heim en á nóg eftir…

Að gefnu tilefni þá tek ég fram að ég er kominn heim til Íslands eftir rúma 7 mánuði á ferðalagi. Þrátt fyrir að vera staddur í Gimli á videoblogginu þá er langt í frá að það hafi verið síðasti áfangastaðurinn. Ég mun á næstu dögum klára ferðalagið hér á blogginu enda á nægu að taka. Gæti trúað því að þetta væru 5-6 videodagbækur ásamt einhverju aukaefni.

Stay tuned.

Ég endaði ferðalagið á Þjóðhátíð í Vestmannaeyjum en alltaf þegar ég kem til eyjunnar fögru grænu þá splæsi ég í eitt stykki myndatöku fyrir framan Baldurskró.

Anonymous asked: hvad heitir lagid i Videodagbók #32

Sælir/Sælar,

Lagið heitir I am the sound með hljómsveitinni My Tiger, My Timing.

Mun svo birta upplýsingar um lögin úr öllum dagbókunum innan skamms.

B.kv. Baldur Kristjáns

Videodagbók #38

Ég hika ekki við að segja að Gimli hafi verið einn besti áfangastaðurinn á ferðalaginu. Aðra eins gestrisni hef ég aldrei upplifað og það var gaman að sjá hversu stoltir íbúarnir eru af uppruna sínum. Þetta er ekki í síðasta skipti sem ég heimsæki Gimli, svo mikið er víst.

Stelpan sem tók lagið við varðeldinn heitir Alana Levandoski og er þekkt tónlistarkona í Kanada. Heimasíðan hennar er: alanalevandoski.com.

Videodagbók #37

Ég hef fengið ótrúlega mikið af skemmtilegum póstum, skilaboðum og kveðjum á hinum ýmsu formum sem hafa oft á tíðum gefið manni aukakraft í ferðalaginu. 

Stundum fylgja spurningar með - sem er hið besta mál - og hér er vonandi einhverjum spurningum svarað.